Nýverið stóðu Samtök áhugafólks um spilafíkn ásamt hópi nemenda og kennara við Háskóla Íslands (HÍ) fyrir hádegisfundi í Þjóðminjasafninu þar sem til umræðu var spilakassarekstur Háskólans. Happdrætti Háskóla Íslands er í eigu Háskólans og hefur það hlutverk að halda utan um rekstur happdrættis, skafmiðasölu og spilakassa í þeim tilgangi að… Read More
Á mánudaginn var efndu Samtök áhugafólks um spilafíkn (SÁS) og hópur kennara og nemenda til hádegisfundar á Þjóðminjasafninu. Þetta var fallegur dagur en fundarefnið var það ekki. Til umræðu var nefnilega spilafíkn og spilakassarekstur Háskóla Íslands. Til fundarins var boðað í aðdraganda rektorskjörs, en ljóst er að fjármögnun Háskólans með… Read More
Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, mætti í Reykjavík síðdegis og ræddi um spilakassarekstur Háskóla Íslands. Það má segja að Ögmundur sé hálfgerður aðgerðarsinni og hefur barist ötullega í áraraðir fyrir lokun spilakassa. Hér fyrir neðan má hlusta á viðtalið við Ögmund:… Read More
Taflan sýnir hvernig æðsta menntastofnun þjóðarinnar, Háskóli Íslands, hafði eina milljón og sextíu þúsund krónur af ”viðskiptavini” í spilavítum sínum á tveimur sólarhringum. Þarna gefur að líta bankayfirlit spilafíkils frá því í júlí á árinu 2017. Uppfært samkvæmt verðlagsþróun væri upphæðin nú talsvert hærri. Þetta fórnarlamb Háskólans var mætt… Read More
Samtök áhugafólks um spilafíkn voru stofnuð árið 2019 af hópi fólks sem lætur sig málefni spilafíkla, spilakassa og fjárhættuspila varða. Eitt af fyrstu verkum samtakanna var að ráðast í skoðanakönnun sem kannaði viðhorf Íslendinga til spilakassa og hvort Íslendingar vildu almennt loka spilakössum til framtíðar. Niðurstöðurnar voru mjög afgerandi og… Read More
Þar sem ég sat á stól í Ými, nýju kaffihúsi hinnar nýju Eddu – húss íslenskra fræða, rifjaðist upp fyrir mér óviðjafnanleg sköpunarsaga norrænna manna. Úr hrímþursinum Ými mun heimurinn hafa verið skapaður. Það voru afkomendur hans, Óðinn, Vilji og Vé, sem vógu hann og gerðu úr beinunum fjöll, blóðinu… Read More
Mig langar til að byrja á því að taka ofan fyrir því fólki sem ég hef komist í kynni við allar götur frá því ég tók við kyndli Guðrúnar Helgadóttur, alþingismanns, innan Alþingis, ásamt nokkrum öðrum þingmönnum, of fáum því miður, í baráttu gegn fjárhættuspilum og spilakössum. Tekið ofan Ég… Read More
Opnun spilakassa var ofarlega á forgangslista sóttvarnalæknis yfir starfsemi sem hann lagði til og stjórnvöld samþykktu að fengju að opna að nýju, þrátt fyrir að Covid-19 geisi enn. Þessar breytingar voru kynntar sem varfærnar tilslakanir á gildandi sóttvarnareglum. Þorri almennings var í skýjunum þegar tilkynnt var um hinar nýju varfærnu… Read More
Vissir þú að á Íslandi eru 872 spilakassar? Fæstir gera sér grein fyrir að við grunn- og menntaskóla er fjöldinn allur af spilakössum sem börnin okkar hafa greiðan aðgang að. Samtök áhugafólks um spilafíkn hafa bent á að eftirlit með spilakössum er í molum. Söluturnar og veitingastaðir hafa… Read More
„Viðhorfskannanir sýna að þorri fólks er neikvætt gagnvart því að starfsemi í almannaþágu sé fjármögnuð með spilakössum. Það eru engar rannsóknir sem sýna fram á það að þeir sem glími við spilafíkn myndu frekar snúa sér að fjárhættuspilum á netinu í staðinn. Engar.“ Þetta sagði Sara Elísa Þórðardóttir, þingmaður Pírata,… Read More
Könnun um spilahegðun Íslendinga sem samtök áhugafólks um spilafíkn kynnti „staðfestir það sem lengi hefur verið rætt um, þ.e. að það er tiltölulega lítill hópur fólks sem stendur undir ótrúlegum fjárhæðum sem fara í spilakassana. Þeir eru í raun keyrðir áfram af þeim sem eiga við spilafíkn að stríða með… Read More
Menntamálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir Að gefnu tilefni óska Samtök áhugafólks um spilafíkn eftir afstöðu menntamálaráðherra til reksturs spilakassa í fjáröflunarskyni fyrir Háskóla Íslands og jafnframt viðbrögðum við ummælum, annars vegar forstjóra Happdrættis Háskóla Íslands, og hins vegar dómsmálaráherra, um ábyrgð menntamálaráðherra í þessu efni. … Read More
Ég hef að undanförnu fylgst með aðdáunarverðri baráttu nýstofnaðra Samtaka áhugafólks um spilafíkn. Þetta eru samtök fólks sem haldið er spilafíkn, aðstandendur spilafíkla og annað áhugafólk um að kveða niður þá vá sem stafar af spilkössum, hvort sem er í sjoppum eða sérhönnuðum spílavítum. Þau síðastnefndu eru rekin af Háskóla… Read More
Hver er munurinn á einum spilakassa og mörgum? Jú – þú smitast ekki af Covid-19 ef þú spilar bara í kassa sem er einn síns liðs. Samkvæmt íslenskum heilbrigðisyfirvöldum þá er engin sýkingarhætta þegar spilakassar eru einir á ferð, bara ef þeir eru margir í hóp. Þetta er þvílík snilld… Read More
Alma Hafsteinsdóttir fíkni- og fjölskyldumarkþjálfi leggur sig fram um að gera Ísland að vænlegum stað að búa á fyrir alla þá sem hafa meiðst vegna spilafíknar. Hún segir ótrúlegt að sjá réttlætingu þeirra sem standa í vegi fyrir framþróuninni sem hún segir mikilvægt að verði í samfélaginu til að þessi… Read More
Fréttatilkynning frá Samtökum áhugafólks um spilafíkn Reykjavík, 15. maí 2020 Eindreginn stuðningur er í samfélaginu við að spilakassar verði lokaðir til frambúðar. Þetta sýnir viðhorfskönnun um spilakassa og spilasali á Íslandi sem Gallup vann fyrir Samtök áhugafólks um spilafíkn. Meirihluti er andvígur því að starfsemi í almannaþágu sé fjármögnuð… Read More
Þú getur lagt baráttunni lið með að ná í skjöld (e. badge) á Facebook og splæsa honum saman við prófílmyndina þína.
Ná í skjöld
Þú getur hlaðið niður myndum til að deila á Instagram undir kassamerkinu #lokumspilakössum. Þannig breiðum við út boðskapinn.
Skoða myndir
Þú getur lagt þitt af mörkum og þrýst á stofnanir og samtök sem hagnast á veikum spilafíklum með því að senda þrýstipóst á forsvarsmenn þeirra.
Senda póst