Skip to content
Nýverið stóðu Samtök áhugafólks um spilafíkn ásamt hópi nemenda og kennara við Háskóla Íslands (HÍ) fyrir hádegisfundi í Þjóðminjasafninu þar sem til umræðu var spilakassarekstur Háskólans. Happdrætti Háskóla Íslands er í eigu Háskólans og hefur það hlutverk að halda utan um rekstur happdrættis, skafmiðasölu og spilakassa í þeim tilgangi að… Read More
Á mánudaginn var efndu Samtök áhugafólks um spilafíkn (SÁS) og hópur kennara og nemenda til hádegisfundar á Þjóðminjasafninu. Þetta var fallegur dagur en fundarefnið var það ekki. Til umræðu var nefnilega spilafíkn og spilakassarekstur Háskóla Íslands. Til fundarins var boðað í aðdraganda rektorskjörs, en ljóst er að fjármögnun Háskólans með… Read More
Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, mætti í Reykjavík síðdegis og ræddi um spilakassarekstur Háskóla Íslands. Það má segja að Ögmundur sé hálfgerður aðgerðarsinni og hefur barist ötullega í áraraðir fyrir lokun spilakassa. Hér fyrir neðan má hlusta á viðtalið við Ögmund:… Read More
Taflan sýnir hvernig æðsta menntastofnun þjóðarinnar, Háskóli Íslands, hafði eina milljón og sextíu þúsund krónur af ”viðskiptavini” í spilavítum sínum á tveimur sólarhringum. Þarna gefur að líta bankayfirlit spilafíkils frá því í júlí á árinu 2017. Uppfært samkvæmt verðlagsþróun væri upphæðin nú talsvert hærri. Þetta fórnarlamb Háskólans var mætt… Read More
Samtök áhugafólks um spilafíkn voru stofnuð árið 2019 af hópi fólks sem lætur sig málefni spilafíkla, spilakassa og fjárhættuspila varða. Eitt af fyrstu verkum samtakanna var að ráðast í skoðanakönnun sem kannaði viðhorf Íslendinga til spilakassa og hvort Íslendingar vildu almennt loka spilakössum til framtíðar. Niðurstöðurnar voru mjög afgerandi og… Read More
Þar sem ég sat á stól í Ými, nýju kaffihúsi hinnar nýju Eddu – húss íslenskra fræða, rifjaðist upp fyrir mér óviðjafnanleg sköpunarsaga norrænna manna. Úr hrímþursinum Ými mun heimurinn hafa verið skapaður. Það voru afkomendur hans, Óðinn, Vilji og Vé, sem vógu hann og gerðu úr beinunum fjöll, blóðinu… Read More
Mig langar til að byrja á því að taka ofan fyrir því fólki sem ég hef komist í kynni við allar götur frá því ég tók við kyndli Guðrúnar Helgadóttur, alþingismanns, innan Alþingis, ásamt nokkrum öðrum þingmönnum, of fáum því miður, í baráttu gegn fjárhættuspilum og spilakössum. Tekið ofan Ég… Read More
„Ég er búinn að vinna úr þessu eins mikið og hægt er og því á ég auðvelt með að tala um þetta. Ef ég væri ekki týpan sem ég er myndi þetta eflaust vega þyngra á mér. En þessu verður aldrei snúið við.“ Þetta segir Bjarni Jónsson, 38 ára karlmaður… Read More
„Í rauninni fór ég aldrei yfir mín mörk því spilafíkill sem er virkur á sér engin mörk. Hann þarf bara að verða sér út um fé til að geta spilað. Ef það er ekki hægt að spila þarf bara að bíta í það súra epli þar til aurarnir koma.“ Þetta… Read More
Guðbjörg Glóð Logadóttir, stofnandi og eigandi Fylgifiska, missti föður sinn úr krabbameini árið 2017. Hann var 66 ára að aldri. Árið 2000, þegar faðir hennar var rétt tæplega fimmtugur, fékk hann vírus í heila sem olli svo miklum persónubreytingum að faðirinn sem Guðbjörg ólst upp með og leit upp til… Read More
„Pabbi minn er spilafíkill. Þegar ég var barn tapaði hann aleigunni, datt í það og keyrði fullur á tré. Ég held að hann hafi ætlað að drepa sig.“ Þetta segir ung kona á höfuðborgarsvæðinu sem vill ekki koma fram undir nafni af virðingu við föður sinn. Hún verður héðan í… Read More
„Ég áttaði mig sem betur snemma á því á meðgöngunni að barnsfaðir minn væri spilafíkill. Þá tók ég ákvörðun að frekar yrði ég einstæð móðir en að basla alla ævi með spilafíkli.“ Þetta segir kona sem á ungan dreng með spilafíkli. Drengurinn fór mjög ungur reglulega til föður síns sem… Read More
„Sem barn var ég mjög eirðarlaus og tengdi lítið. Mig vantaði alltaf eitthvað kikk og fann það í alls konar, allt frá sykri í að kveikja í sínu,“ segir Ágúst Már Garðarsson, kokkur, sem oftast er kallaður Gústi. „Fyrsta minningin mín af spilum var í ferðalagi með foreldrum mínum. Við… Read More
„Þetta byrjar á einu skipti þar sem maður eyðir meira en maður ætlaði. Skiptin verða fleiri og fleiri og upphæðirnar hærri og hærri. Allt í einu eru spilakassar búnir að taka völdin í lífinu þínu.“ Þetta segir Karitas Valsdóttir, rúmlega þrítug kona sem hefur glímt við spilafíkn um nokkurt skeið. Read More
„Siðleysið er svo yfirgengilegt. Það fer öll heilbrigð skynsemi út um gluggann. Það sem ég hef aldrei getað skilið er hvernig getur hann gert mér þetta ef hann elskar mig?“ Þetta segir kona á miðjum aldri sem hefur verið í sambandi með spilafíkli í níu ár. Hún vill ekki koma… Read More
„Þessi fíkn er ólýsanleg. Það er svo rosalega erfitt að stoppa hana, en það er hægt. Þetta snýst ekki um peninga. Þetta snýst um að fóðra fíknina. Í staðinn fyrir að innbyrða eitthvað til að gera það verður maður að setja pening í maskínu.“ Þetta segir karlmaður á höfuðborgarsvæðinu sem… Read More
„Persónulega hef ég aldrei skilið af hverju ég geri þetta. Ég skil læknisfræðilegu útskýringuna en ég skil ekki af hverju ég hef enga stjórn. Í hvert einasta sinn sem ég tapaði öllu skrifaði ég heilu ritgerðirnar um það hvernig ég ætlaði að haga mínu lífi. Það skipti engu máli. Ég… Read More
„Vandamálið eru ekki við – vandamálið eru þau,“ segir ung kona á höfuðborgarsvæðinu sem á barn á leikskólaaldri með manni sem er spilafíkill. Hún vill ekki koma fram undir nafni til að vernda fjölskyldu sína og verður hér eftir kölluð Fjóla. Skapvondur og orðljótur Fjóla kynntist barnföður sínum fyrir nokkrum… Read More
„Ég vil ekki að neinn gangi í gegnum svona. Ég er ekki stoltur af því að vera spilafíkill en ég er spilafíkill. Ég er meðvitaður um það, en lífið hefur upp á svo margt annað að bjóða.“ Þetta segir karlmaður sem ekki vill láta nafn síns getið sem hefur glímt… Read More
„Ég var níu ára þegar mér var réttur kollur svo ég næði upp í spilakassann í sjoppunni. Tíu ára var ég orðinn háður og var alla daga í spilakössum,“ segir Georg Friðgeir Ísaksson. Ekki leið á löngu þar til Georg var byrjaður að falsa ávísanir til að geta dvalið löngum… Read More