Alma Haf­steins­dótt­ir fíkni- og fjöl­skyldu­markþjálfi legg­ur sig fram um að gera Ísland að væn­leg­um stað að búa á fyr­ir alla þá sem hafa meiðst vegna spilafíkn­ar. Hún seg­ir ótrú­legt að sjá rétt­læt­ingu þeirra sem standa í vegi fyr­ir framþró­un­inni sem hún seg­ir mik­il­vægt að verði í sam­fé­lag­inu til að þessi mál verði tek­in föst­um tök­um. Á miðnætti um ára­mót­in ætl­ar hún að loka aug­un­um og sjá fyr­ir sér þegar til­kynnt verður um lok­un spila­kassa til fram­búðar. Sem hún tel­ur einu skrefi nær fal­legra sam­fé­lagi fyr­ir okk­ur öll.

„Það er búið að vera mikið að gera hjá okk­ur í Sam­tök­um áhuga­fólks um spilafíkn. Þar starfa ég sem formaður ásamt ótrú­lega góðum hópi fólks sem legg­ur hjarta sitt og sál í þau verk­efni sem sam­tök­in vinna að. Til­gang­ur sam­tak­anna er að fræða, upp­lýsa fólk um mál­efni spilafíkla og tala fyr­ir breyt­ing­um á spila­kassamarkaði. Ég er einnig að búa mig und­ir loka­próf sem alþjóðlega vottaður spilafíklaráðgjafi. Ég hefði átt að klára í haust en það hef­ur taf­ist vegna kór­ónu­veirunn­ar. Núna í haust byrjaði ég svo í sál­fræði við HR og var að klára jóla­próf­in, sem er hress­andi. Auk þessa er ég með stof­una mína, Spila­vandi.is, þar sem ég aðstoða spilafíkla við að taka á vanda sín­um.“

Þakkát fyr­ir þá vit­und­ar­vakn­ingu sem hef­ur orðið

Alma seg­ir árið að mörgu leyti hafa verið frá­bært, þrátt fyr­ir ástandið.

„Það hef­ur mik­il vit­und­ar­vakn­ing átt sér stað í mál­efn­um spilafíkla. Við erum far­in að ræða spila­kassa mál­efna­lega og kalla sam­tök, stofn­an­ir og rekstr­araðila til ábyrgðar. Svo hef ég verið í námi til að dýpka og auka við þekk­ingu mína á spilafíkn og það er ótrú­lega spenn­andi og gam­an. Ég hef líka, eins og marg­ir, fengið meiri tíma með mín­um nán­ustu og það hef­ur svo sann­ar­lega hægst á mörgu í okk­ar sam­fé­lagi, sem mér lík­ar ágæt­lega.“

Hún seg­ir að vegna veirunn­ar hafi eðli rekst­urs spila­kassa op­in­ber­ast.

„Það þrengdi að í þjóðfé­lag­inu og þá kem­ur ým­is­legt í ljós og það hef­ur gert það varðandi rekst­ur spila­kassa. Við hjá Sam­tök­um áhuga­fólks um spilafíkn finn­um fyr­ir því að spilafíkl­ar, ást­vin­ir þeirra og al­menn­ing­ur styður það sem við töl­um fyr­ir. Það er gott að finna það og það hvet­ur okk­ur til að halda áfram, að gera meira og bet­ur. Við höf­um alltaf lagt upp með að vera heiðarleg og sönn í okk­ar mál­flutn­ingi og það er að skila sér. Fólk hef­ur ekki verið vilj­ugt til að koma fram und­ir nafni og í mynd, en það er að breyt­ast. Með því að fólk stígi fram og segi sína sögu get­um við farið að tala um spila­kassa eins og þeir eru í al­vöru, en ekki bara sem eitt­hvert fjár­öfl­un­ar­verk­efni sem stjórn­ir góðgerðarsam­taka geta fært í bók­hald, nú eða byggt rosa flott­ar bygg­ing­ar og all­ir kát­ir.“

Fjöl­skyld­an og ást­vin­ir skipta miklu máli

Það er ým­is­legt sem hef­ur komið Ölmu á óvart á ár­inu. Þá sér í lagi fólki í ábyrgðar­stöðum og rétt­læt­ing­in sem það not­ar þegar kem­ur að fjár­öfl­un og pen­ing­um.

„Það sem kem­ur mér mest á óvart og mér finnst átak­an­leg­ast við mál­flutn­ing rekstr­araðila spila­kassa er að for­menn góðgerðarsam­taka, rektor Há­skóla Íslands og dóms­málaráðherra skuli koma op­in­ber­lega fram og rétt­læta þessa starf­semi. Því miður held ég að eft­ir nokk­ur ár verði þau um­mæli svart­ur blett­ur á starf­semi þeirra og ráðherratíð, þegar fólk átt­ar sig í raun á hvaða skaða og hörm­ung­um spila­kass­ar hafa valdið í sam­fé­lagi okk­ar í næst­um 30 ár.“

Hvernig rétt­læt­ir fólk spila­kass­ana í land­inu? Erum við gam­aldags í hugs­un?

„Ég hef ekki hitt neinn á þessu ári sem rétt­læt­ir rekst­ur spila­kassa, aðra en for­menn og for­stjóra rekstr­araðila, já og dóms­málaráðherra, sem er gott. Al­menn­ing­ur virðist vera bú­inn að átta sig á hversu mik­il tíma­skekkja þess­ir spila­kass­ar eru og spila­kass­ar bæta ekki við nein­um lífs­gæðum; hvorki fyr­ir not­end­ur spila­kassa né sam­fé­lagið.“

Hverj­ir styðja þig í bar­áttu­mál­um ykk­ar?

„Fjöl­skyld­an mín og ást­vin­ir styðja mig per­sónu­lega en málstað spilafíkla og þeirra sem orðið hafa fyr­ir áhrif­um spila­kassa ótrú­lega marg­ir og eft­ir að umræðan jókst og fólk varð upp­lýst­ara hef­ur fjölgað í hópi þeirra sem finnst þetta ósiðlegt og óviðun­andi. Fólk er líka meira farið að taka und­ir málstað spilafíkla og það er ótrú­legt að upp­lifa það. Spilafíkl­ar hafa hingað til ekki haft neina rödd eða neinn til að tala fyr­ir því hve skaðleg­ir og ávana­bind­andi spila­kass­ar eru, en það hef­ur orðið breyt­ing á því. Hér áður sögðu rekstr­araðilar bara að þetta væri nú allt í góðu og þetta væri al­deil­is fín fjár­öfl­un en það er lít­ill meðbyr með slík­um mál­flutn­ingi núna.“

Trú­ir á betri leiðir til fjár­mögn­un­ar

Hverj­ir standa fast á móti breyt­ing­um?

„Stjórn Rauða kross­ins, stjórn Lands­bjarg­ar, rektor Há­skóla Íslands og dóms­málaráðherra. Þó svo lög­gjaf­inn veiti leyfið þá er öll­um rekstr­araðilum spila­kassa í sjálfs­vald sett hvort þeir nýta leyfið. Þess­ir aðilar geta alltaf neitað að taka við pen­ing­um í gegn­um þessa starf­semi. Há­skóli Íslands er með flokka­happ­drættið og gæti látið það duga og neitað að standa í rekstri spila­kassa. Stjórn­ir Rauða kross­ins og Lands­bjarg­ar gætu neitað að stunda þessa starf­semi og fundið aðrar leiðir og treyst al­menn­ingi og þá væru þessi sam­tök að fá raun­veru­lega frjáls fram­lög og væru ekki að taka við blóðpen­ing­um. En stjórn­ir þess­ara sam­taka kjósa þessa leið og hafa gengið mjög harka­lega fram í að rétt­læta sig.“

Hvað ósk­arðu þess að ger­ist á ár­inu 2021?

„Að spila­köss­um verði lokað og við för­um að tak­ast á við vand­ann sem bíður okk­ar í fjár­hættu­spil­um á net­inu, ásamt inn­lend­um fjár­hættu­spil­um. Svo þarf að koma á meðferð við spilafíkn þar sem starfs­fólk hef­ur sérþekk­ingu á spilafíkn og meðhöndl­un henn­ar, bæði fyr­ir spilafíkl­ana og fjöl­skyld­ur þeirra. Þetta þurfa að vera frí úrræði og hluti af heil­brigðisþjón­ustu!

Einn af mín­um draum­um, sem stefn­ir í að muni ræt­ast árið 2021, er að sitja með hópi fagaðila og ræða meðferðarúr­ræði og hvað sé best að gera til að hjálpa fólki sem misst hef­ur tök­in á fjár­hættu­spil­um. Okk­ar bíður stórt verk­efni í þeim mál­um, þar sem al­gjör þögg­un hef­ur ríkt um fjár­hættu­spil og þeir aðilar sem við helst hefðum talið að ættu að leiða umræðuna hafa hagn­ast á henni og talað fyr­ir því að víkka út starf­semi sína með því að koma henni einnig á netið. Það á eft­ir að koma í ljós á næstu miss­er­um hve mik­ill fjöldi fólks er að tak­ast á við spilafíkn. Auk þess á sá vandi bara eft­ir að aukast og við verðum að vera búin und­ir að hjálpa þeim ein­stak­ling­um sem vilja hjálp, sam­eina fjöl­skyld­ur og aðstoða fólk í átt að bata og aft­ur til baka í sam­fé­lagið okk­ar.“

Viðtalið birtist á mbl.is 4.1.2021